14maí

Allt að gerast

Hellú hellú alle sesse fólkur sem lesa tesse bloggúr.
Það er orðið hel%/&/&& langt síðan ég gerði eitt né neitt á þessari síðu, enda gerist ekkert spennandi í mínu lífi, allavegana ekkert sem ég ætla að fara að flagga hér Glottandi

En allavegana, 5 vikur í Costa, og nú á ako að taka á því ræktinni enda ætla ég að verða einhvernvegin svona
whynotad (Hot Women Halle Berry)hvað segið með það haldið að ég nái því? En ég verð náttúrulega ekki svona tönuð fyrr en ég kem heim.


En þá að máli málanna starfsmannasjóðnum........ nei grín mál málanna er BÍLSKÚRSSALA Í SIGTÚNI 9. 
Knattspyrnufélagið Ástríkur er að fara að halda bílskúrssölu, smá fjáröflun fyrir sumarið og vil ég hvetja alla til að koma.  Fullt af fínu dóti í boði. 

Ég mun koma með nánari tímasettningar síðar.

En þangað til þá
Tagg fyrir elsku dúllurnar mína
14. maí 2008 klukkan 14:02
Hlíf Böðvarsdóttir
9 athugasemdir
16apríl

Afmæli, Afmæli Afmæli

Já mig langaði bara að óska öllum þeim sem eiga afmæli um þessar mundir hamingju óskir.


                          Eyja enn og aftur til hamingju með afmælið og skírnina

    Lilja til hamingju með afmælið í dag                                                          

                           Raggi til hamingju með afmælið á morgun 
                          
                           Sindri til hamingju með afmælið 25. (tugtugasta og fimmta apríl)

Nóg að gera i afmælunum þessa dagana. 
16. apríl 2008 klukkan 13:30
Hlíf Böðvarsdóttir
1 athugasemd
07apríl

Málarinn talar

Jæja nú  er ég búin að fá íbúðina mína og búin að standa í ströngu við að mál allt í hólf og gólf.  Bjarnheiður systir var svo góð að koma að hjálpa mér á föstudaginn.  Svo komu Tóta teip og Gugga gormur og við skveruðum af 1. umferð .
É plataði  Ella mág minn til að lána mér vinnubílinn sinn á sunnudaginn til að fara í bæinn og ná í dótið mitt á Leifsgötunni.  Ég og pabbi henntumst í bæinn og komum öllu draslinnu inn með mikilli lagni og verkfræðilegum pælingum.  Skunduðum svo á Selló með draslið og henntum þvi inn á Austurveginn.
En það var enginn tími til að fara koma draslinu fyrir því ég þurfti að mæta á æfingu kl 18 út í kirkju.

Gospelkórinn var með tónleika í Selfosskirkju í gær.  Þetta voru þrusu góðir tónleikar hjá okkur, þó ég segji sjálf frá.  Kirkjan var alveg stút full við erum að tala um 400-500 manns alveg met aðsókn. 
Ég hef aldrei skemmt mér eins vel að syngja á tónleikum, klapp og smell í tíma og ótíma og maður mátti/átti að dilla sér eins og maður gat.  ÉG FÍLA' AÐ DILLA DILLA......
En með þessum tónleikum lauk Gospell námskeiðinu, sem er mjög leiðilegt, hvað á maður nú að gera á fimmtudagskvöldum? 

En allavegana þá er Litli kallinn orðin sjálfstæður einstaklingur, hvernig ætli það gangi hmmmm.....

Hlakka til að fá alla í heimsókn.
07. apríl 2008 klukkan 14:41
Hlíf Böðvarsdóttir
5 athugasemdir
26mars

Áminning

Ég vil minna þá drengi á sem voru í brúðkaupinu hjá Gumma bró í sept. að ég auglýsti eftir e-h til að giftast mér.  Ég, eins og menn muna, greip brúðarvöndinn og auglýsti eftir manni til að taka það að sér að lofast mér.  Ef ég man rétt þá var ég búin að ákveða
2. ágúst.  Ég er alveg til í að breyta því ef þið eruð hræddir, þið viljið kanski kinnast fyrst, það skiptir mig engu máli.
Ég er nokkuð viss um að Gummi Kalli sem var skemmtanastjóri í brúðkaupinu hafi ekki skilað tilboðunum sem bárust honum, og vil ég þá minna á mig hér.
Þið ungu piltar sem skiluðu inn tilboðum getið því sennt mér þau á e-maili á hlibba83@gmail.com

26. mars 2008 klukkan 10:30
Hlíf Böðvarsdóttir
5 athugasemdir
19mars

Lesið stjörnuspánna!

Stjörnuspá sporðdrekans miðvikudaginn 19. mars hljóðaði einhvernvegin svona, "Vertu vakandi því annars gætiru mist af góðum tækifærum"  Og viti menn ég var vakandi og fékk íbúð í dag VEIIIEIEIEIEIEIIIIIII.  Já, þannig að um næstu mánaðarmót mun ég flytja á Austurveg 40.
Ekkert flókið, ég hringdi lét vita af mér, svo hringdi Pétur í mig og sagði mér að hann hafði talað við strákinn og  gefið mér meðmæli og viti menn síminn hringdi aftur eftir 15 mín. og íbúðin var mín.  Núna leigi ég íbúð af Hvítasunnukirkjunni, hehehe  eins gott að haga sér vel.

Guð hvað ég hlakka til að fara dekoreita og gera ógó huggulegt.
Þannig nú þarf ég að fara í bæinn og pakka niður öllu dótinu mínu sem er á Leifs.

Svo spennt að ég get ekki unnið.
19. mars 2008 klukkan 15:40
Hlíf Böðvarsdóttir
5 athugasemdir
07mars

Bara svalt hús sem ég stal hjá honum Óla frænda

07. mars 2008 klukkan 13:55
Hlíf Böðvarsdóttir
Engin athugasemd
07mars

Vá...

ég var að taka eitthvað próf á facebook, hvernig týpa ert þú
og svarið er eins og það hafi verið búið til um mig

Þú ert einstaklega gömul sál og mikill hugsuður! Það er gaman að vera í kringum þig því þú segjir skemmtilegar sögur og kemur svo sannarlega til dyranna eins og þú ert klæddur! þú átt marga vini en afar fáa óvini! Það er gott að vinna með þér því þú ert hörkuduglegur og líflegur! Það er ekki annað hægt en að þykja vænt um þig! Þú ert með háan standard þegar kemur að hinu kyninu en átt til að enda sem "vinur" þeirra sem þú kynnist en ekki elskhugi.

Mér fynst þetta vera frekar líkt mér, hvað finst ykkur?
07. mars 2008 klukkan 11:44
Hlíf Böðvarsdóttir
1 athugasemd
06mars

ég er hætt....

... að læsa bílnum "mínum".  Það var nefnilega þannig að á þriðjudaginn mætti mín bara í vinnunna eins og alla aðra daga.  Um hádegi, þegar ég ætlaði að fara í luch þá fattaði ég að ég hafði læst bíllykilinn inn í bíl og þar sem þetta var auka lykillinn, því ég er búin að týna hinum þá var ég algjörlega fuckt. Mig grunar reyndar að hann sé einhverstaðar í skafli í sigtúninu, hann kemur kanski í ljós í vor þegar snjó tekur að leysa.   Kallarnir í vinnunni kunnu ekki að brjótast inn í bílinn án þess að brjóta rúðu svo ég neyddist til að hringja í Lögregluna. 
Eftir smá grín í minn garð kom löggan og ég fór út í grenjandi rigninguna og hún (löggu konan) reyndi að opna bílinn, og enn rigndi og ég stóð úti á peysunni eins og einhver bolur í grenjandi rigningu og fyrir hvað EKKERT hún gat ekki opnað bílinn minn.
Þannig að ég þurfti að skilja bílinn eftir  í kuldanum.  Nú pabbi var náttúrulega ekki ánægður með stelpuna sína en hvað gera bændur í svona málum, Þeir redda sér.
Pabbinn hringdi upp á Toyota gaf þeim nr. á bílnum og viti menn það er hægt að búa til lykla eftir bílnúmerum, Veiii.  Guð hvað ég er ánægð að búa á tækniöld.
Svo ég sótti lyklana í gær, bjóst við að labba út með mikklu léttara veski, en það var nú ekki raunin 1800 kall fyrir 2 lykla.  Ég mæli með þessu, sérstaklega fyrir reykvíkinga þar sem það kostar fullt af peningum að fá lögguna til að koma og pikka upp lása. Farið bara og panntið nýja lykla.

Logreglustjarna  Heyrðu svo voru að byrja 2 aðrir útlendingar á Verkfræðistofunni og greyin þau þora ekki að segja neitt, það heyrist ekki múkk í þeim allan daginn.  Við hjéldum kanski að Marco, sem er búin að vera hér lengst mundi kanski tala meira við þau (þau voru í skóla saman) en nei hann þegir bara líka.  Mig langar að tala við þau en ég hef bara ekkert að segja og veit ekkert hvað ég á að spyrja þau að. 


En allavegana þá er ég að fara í Iðnskólapartý á morgun, hitta stelpurnar sem voru með mér í skólanum, vonandi að það verði bara skemmtilegt, ég hef allavegana Eygló hún er alltaf skemmtileg.

En ég held að ég hafi ekkert meira að segja í bíli hmmmmmmm Nei ekkert.

Sjáumst á Pöbba prófi í kvöld
06. mars 2008 klukkan 09:55
Hlíf Böðvarsdóttir
6 athugasemdir
27febrúar

Nú verð ég að hætta þessu...

party party 3 daga í viku, ekki gott.
Alla vegana þá var það pub cviz á fimmtudaginn, sem ég var ekki að taka þátt í, heldur sat ég og drakk öl og veiti Tútsí og Gúcci andlegan stuðning.  Þar af leiðandi fórum við ekki í ræktina ;( 

Föstudagur var það enn og aftur krúsin, við ætluðum svo ekki að gera neitt svo við gætum farið í ræktina til að bæta upp tapið daginn áður en nei ekki gátum við það og svo kom Sigga alveg til í game.
Og þá var krúsin teki enn og aftur, ekki að það var eitthvað leiðilegt, ég skemmti mér alveg konunglega eins og alltaf.
Ekkert eftirpartý í þetta skiptið þó svo að við fréttum að viltu og trilltu partýi hér í bæ, en þar voru manneskjur sem okkur líkar ekki mjög vel við.  Þannig við fórum bara í skúrinn og átum kaldan kjúkling og drifum okkur í bólið ( ég og Gugga).

Laugardagurinn rann upp um hádegi, alla vegana þá vaknaði ég þá.  Þá fór ég í bæinn til fyrrum sambílinga minna á Leifs.  Þar var þynka á bæ  sem á öðrum bæjum.  En það var ekki að stoppa okkur við að skipuleggja kvöldið með ennþá meiri drykkju.  Vaka og Maggi buðu okkur í mat og við Halla áttum góða kvöldstund með þeim og horfðum á Evrovision.
Síðan fórum við heim og dressuðum okkur upp, 1 Mojito og við reddí.  Við byrjuðum að fara á Vegó (merkilegt ha) en svo enduðum við náttúrulega á okkar hverfis pub, Celtic.  Þar var dúndur stuð á öllum hæðum.  Við hittum fullt af fólki þar eins og alltaf, takk fyrir síðast Tóti, Anna Magga og Árni Hrafn og fleiri sem ég ætla ekki að nefna hér ;)

Sunnudagur: Kíkti í Kringlen  í klukkara og svo var bara komin tiími til að elda, enda langt liðið á daginn.  Stefnan var svo teki á Nasa þar sem við áttum miða á Bluegrass hljómsveitina Heyseed dixie.  Þeir voru þrusu góðir, ég hefði sammt viljað hafa sæti eða þá að það væri laugardagur, líkaminn eitthvað þreyttur eftir helgina.  
En góðir engu að síður.  Eftir tónleikana sá ég fram á það  að ég gæti ekki keyrt heim sökum þreytu og ég gisti því í bænum og keyrði heim á mán. morgun, það var ekki farið að byrta einu sinn.
Djö... var ég þreytt í vinnunni, ég var sko næstum því sofnuð fyrir framan tölvunna, í alvöru ég var farin að missa hausinn, ekki töff.

ég er búin að jafna mig og búin að ákveða að það verður ekkert gert næstu helgi, eikki einn bjór.   Sem þíðir að maður þarf að flíja bæinn, einhverjar tillögur?

Allavegana þá bið ég að heilsa í bili. 
27. febrúar 2008 klukkan 10:59
Hlíf Böðvarsdóttir
5 athugasemdir
20febrúar

 ég veit það ekki ég drekk ekki mjólk". 
mér finst þetta eitthvað fyndnar auglýsingar, og það sést greinilega að ég drekk mjólk svo er ég  með svo sterk bein, það þarf svo sterk bein til að vera ég.

 alla vegana þá vil ég benda öllum á, nema þeim sem eru með mjólkuróþol, að mjólk er góð fyrir mig og þig, MJÓLK ER GÓÐ.

Hlíf sterka
20. febrúar 2008 klukkan 08:41
Hlíf Böðvarsdóttir
3 athugasemdir

Aðalvalmynd

Myndir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hlíf Böðvarsdóttir
  • Staður: Selfoss
  • Atvinna: Tækniteiknari
  • Hjúskaparstaða: Singúl
  • Um mig: með sól í hjarta og söng á vörum

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Klukkan

Flokkar

Leikur dagsins